Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Partytime!!!!

10. desember 2008 klukkan 17:16
party


PARTYTiM........

Til hamingju elsku samnemendur með próflokin!! vubb vubb... nú er það bara að fagna upp á það.. Sá fögnuður verður haldin næsta lau. (13.des) kl.21 heima hjá Nóa, Rauðalæk 28!!
Mikil stemming er búin að myndast fyrir þetta magnaða teiti!!! verða þar vatnsrennibrautir, súkkulaði brunnar, kókosolíur og fótboltar...
Hlakka til að sjá ykkur öll þar Cool

    

Þá er þessi önn bara alveg að verða búin

26. nóvember 2008 klukkan 09:59

Jæja kæru bekkjarfélagar, þá er þetta alveg bráðum að verða búið í bili
Sendi ykkur lærdómskveðjur og gangi ykkur vel með þetta allt saman
Hlakka til að sjá alla aftur eftir jól

Kveðja Guðbjörg

Hummusinn góði

29. október 2008 klukkan 14:02
Nú verður síðunni breytt í uppskriftarblogg ... hehe... Nánar

Afmælisbörn dagsins

14. október 2008 klukkan 13:14

Þær eiga afmæli í dag
Þær eiga afmæli í dag
Þær eiga afmæli þær Viktoría og Jóhanna
Þær eiga afmæli í dag

Til hamingju með daginn stelpur

FYRSTA PARTY ANNARINNAR!!!

02. október 2008 klukkan 10:19
Jæja elsku verðandi þroskaþjálfar! þá er komið að því ... fyrsta party annarinnar og ætlar hún Ólöf sæta pía að eiga heiðurinn að því að halda það laugardaginn 4. oktober kl 21:00 að Grenimeli 16 í kjallaranum.. ef þú ert í einhverjum veseni að finna þetta þá er vafasöm planta í glugganum hjá henni ;)

vonumst við til að sem flestir láti sjá sig (semsagt ALLIR)

óskum eftir skreytingarnefnd sem tilbúin er að mæta kl 19:00 til að setja upp partyblöðrur og blanda bolluna (hún er þó óáfeng svo við mælum með að þið komið með bús sjálf þar sem áfengi er aðgangs'miðinn') væri líka skemmtilegt ef fólk kæmi með skemmtiatriði ;)

hlökkum til að sjá ykkur öll að grenimeli 16 kæra fólk!

fleiri upplýsingar í síma 866-2560

p.s þetta er ekki stuttur fyrirvari.. ekkert væl (ekkert skot á viktoríu samt)

er þetta ekki málið? :)

17. september 2008 klukkan 10:37
Jæja kæru samnemendur, við höfum ákveðið að opna eitt stykki blogg síðu hér á veraldarvefnum fyrir þroskaþjálfanema 2008.

Markmið þessarar síðu er að tengja hópinn betur saman.

Við munum senda ykkur email með notendanafni/lykilorði svo þið getið komið orðum ykkar á framfæri ;)

Vonum að það verði tekið vel í þetta og síðan sem og bekkurinn mun vera sprelllifandi í allan vetur ;P

Hlökkum til!!

Kveðja Alma og Arndís

p.s endilega kommentið hér fyrir neðan hvernig þið eruð að taka í þetta ;)

Innskráningar kubbur

Könnun

Ætlaru að mæta í partýið til Nóa?

Flokkar